Ég las fyrst um þetta samband í lögmálinu frá RA. Svo hefur þetta samband verið að stinga upp kollinum hér og þar um Internetið.
Ég hef fundið á YouTube notanda sem reglulega setur inn miðlun frá hinum ýmsu aðilum sem tilheyra þessu sambandi. Mér líkar vel við það sem ég heyri þar og mæli með því að þú kannir það.
Ég fékk sendan tengil í YouTube myndband sem sýnir óþekkt fyrirbæri nálægt sólinni. Þessi fyrirbæri hafa verið að birtast á undanförnum mánuðum og virðast vera að færast nær jörðinni.
Móðurskip eru afskaplega stór. Sum okkar fara þangað á meðan við sofum og sinnum reglubundum störfum. Þau eru að birtast inni í okkar þéttleika í rólegheitum. Eitt hænuskref í einu. Í engri sérstakri röð…
David Icke Interview with Freedom Central in September 2009 in Amsterdam, along side his speaking event David takes time to give detailed information regarding the state of the planet and humanity in general. With some new insight and fresh information which appears in his new book.
Einhvern tíman á síðustu þrjátíu árum höfum við ákveðið að skipta um aðferð í ferlinu okkar að nýjum háttum. Samkvæmt RA og mörgum öðrum þá var ætlunin að jörðin færi í gegnum mikið hamfaratímabil og breytingin tæki skamman tíma. Þaðan eru trúlega flestar hamfara- og heimsendahugmyndir ættaðar.
Þingið sem situr í hringum Satúrnusar, þingið sem við eigum aðild að, hefur einhvern tíman á þessum þrjátíu árum sem liðin eru síðan upplýsingarnar komu frá RA fjallað um þessa breytingu á jörðinni og valið að fara aðra leið. Leið sem innifelur ekki hamfarir eða heimsendi heldur hægari breytingu á milli þroskaþrepa.
Þessi breyting gerir kröfur til okkar sem lifum á þessari jörð, kröfur sem ekki eru fyrir hendi þegar við einfaldlega yfirgefum gamlan og úreltan líkama og fáum nýjan og öðruvísi eftir hamfarirnar. Við lifum í umhverfi sem við vitum að er ekki lengur raunveruleikinn og eigum að geisla gleði, bjartsýni og vitneskju á meðan á breytingum stendur.