Ég er ekki að kaupa þetta
Ég hef verið að hugsa um þessar fullyrðingar um að við eigum von á því að Obama eða einhver opinber einstaklingur boði til fjölmiðlafundar og opinberi að það séu verur frá öðrum hnöttum í samskiptum við ráðamenn þjóða. Innan sex mánaða fullyrða menn.
Ég er ekki að kaupa þetta og finnst þetta ekki vera í samræmi við boðskapinn sem svo hefur verið í gangi. Ég hefði haldið að það geti ekki verið um eina stóra opinberun að ræða. Frekar að þessum litlu, einstaklingar og minni hópar verði fyrir reynslu sem gerir það að verkum að meirihluti íbúa jarðarinnar verði orðnir sannfærðir um að jörðin sé aðeins einn hnöttur í stóru samfélagi.
Þegar þetta hlutfall er búið að ná ákveðnum mörkum, þá gæti verið að menn eins og Obama komi fram með opinberar yfirlýsingar.
Ég sé bara ekki að við séum neitt nálægt þessum mörkum ennþá. Mikið verður að gerast og það hratt ef við eigum að ná því innan sex mánaða.
ættu litlir hópar og einstaklingar að upplifa þetta og trúa áður en yfirvöld upplýsi almenning? hvaða hlutfall er fullnægjandi? hvernig er hægt að mæla þetta hlutfall? hvaða máli skiptir það fyrir opinbera aðila hversu hátt hlutfall hefur upplifað X? þetta er eins og að segja það hið opinbera mun ekki upplýsa um lendingu á tunglinu fyrr en ákveðið hlutfall heimsbyggðarinnar hefur ímyndað sér að labba á tunglinu…
ef þetta er staðreynd þá eru þetta stærstu fréttir sem nokkurn tíman hafa komið fram og það sem meira er, þá yrði þetta aldrei gert nema í samráði við þessa gesti.
Þetta með hlutfallið byggi ég á lögmálinu um frjálsan vilja og held að almenningur sé ekki tilbúinn.
En með sjónvarpsþáttum eins og V.2009 þá er stöðugt verið að berja á almenningi og undirbúa eða gera ónæma fyrir svona fréttum.