Að breyta vatni í vín
Ég fór í messu í gær í Sauðárkrókskirkju. Hef gaman af hugleiðingum um uppruna þeirra tilvitnanna sem presturinn fer með. Þarna játum við trú okkar á Guð og Jesú ásamt því að játa syndir okkar og lofa að hreinsa huga okkar og líf af því sem ekki má. Ætli ráðleggingar Wallace um skapandi hugarfar og hugmyndir um hreinan huga byggi allar á sama grunni. Um flest sem séra Sigríður talaði um var hægt að finna hliðstæður eða nánari skýringar í öllu því sem við höfum velt fyrir okkur á þessari vefsíðu.
Trúlega hafa kirkjunnar menn haft aðgang að þekkingu umfram almenning og þekkingu fylgja völd. Því miður virðast þessir aðilar hafa misnotað sér þetta í græðgi og þar með hafa áherslurnar í upphaflegri kennslu farið fyrir ofan garð og neðan.
Sigríður talaði um frægasta brúðkaup í sögunni þar sem Jesú breytti vatni í vín og sagði þetta einstakt. Ég brosti út í annað því að ég hef séð þetta framkvæmt af töframönnum nútímans. Smelltu hér til að sjá hvernig.