Skipt um aðferð samkvæmt Michael erkiengli

Einhvern tíman á síðustu þrjátíu árum höfum við ákveðið að skipta um aðferð í ferlinu okkar að nýjum háttum. Samkvæmt RA og mörgum öðrum þá var ætlunin að jörðin færi í gegnum mikið hamfaratímabil og breytingin tæki skamman tíma.  Þaðan eru trúlega flestar hamfara- og heimsendahugmyndir ættaðar.

Þingið sem situr í hringum Satúrnusar, þingið sem við eigum aðild að, hefur einhvern tíman á þessum þrjátíu árum sem liðin eru síðan upplýsingarnar komu frá RA fjallað um þessa breytingu á jörðinni og valið að fara aðra leið.  Leið sem innifelur ekki hamfarir eða heimsendi heldur hægari breytingu á milli þroskaþrepa. 

Þessi breyting gerir kröfur til okkar sem lifum á þessari jörð, kröfur sem ekki eru fyrir hendi þegar við einfaldlega yfirgefum gamlan og úreltan líkama og fáum nýjan og öðruvísi eftir hamfarirnar.  Við lifum í umhverfi sem við vitum að er ekki lengur raunveruleikinn og eigum að geisla gleði, bjartsýni og vitneskju á meðan á breytingum stendur.

Þú getur skrifað svar, eða bakvísun frá vefnum þínum.

Skrifa svar

Þú verður að vera innskráður til að skrifa svar.