Ásgeir
Ásgeir er fræðsla og upplýsingar. Þeir eru yfir 1.000 saman sem hjálpast að með upplýsingar til ykkar. Ásgeir byrjar á því að spyrja hvort að þú viljir vita hver þú ert. Ef svarið er já þá færðu að vita í hvaða sálarhlutverkum þú ert. Þeir eru algóðir, gera allt fyrir þig. Hjálpa þér við allt sem er þér til framdráttar í lífinu.
Ef Ásgeir er spurður um einstakling sem er ekki í herberginu þarf hann að fá upplýsingar um aldur, kyn og grófar upplýsingar um heimili eða vinnu. Til dæmis dugar að segja 40 ára karl sem býr á norðvesturlandi og starfar í verslun. Svarið inniheldur þá upplýsingar um sálnahlutverkin hjá viðkomandi, lýsingu á þeim og hvernig þau vinna með hlutverkum þess sem spyr. Ásgeir vill aldrei nein nöfn – enda tilheyra þau ekki sál viðkomandi. Ef spurningar eru almenns eðlis þarf eðlilega engar upplýsingar um spyrjanda.
Sálarhlutverkin eru sjö. Lýsingar Ásgeirs á þeim eru nokkurn vegin í samræmi við Michael.
- Server – Þjónn
- Priest – Prestur
- Artisan – Hagleiksmaður
- Sage – Sögumaður
- Warrior – Stríðsmaður
- King – Konungur
- Scholar – Lærdómsmaður
Ásgeir segir; ímyndaðu þér að þú sért með tvo gíra, og við svissum þér í fyrsta gír og við svissum þér í annan gír og þá breytist þú.