Lærdómsmaður
Lærdómsmaður er hlutlaust hlutverk, hliðrar vel fyrir öðrum hlutverkum í hring um sig. Hann stendur oft svona álengdar og horfir á – er alltaf að draga inn. Hann er alltaf að draga inn upplýsingar. Lærdómsmaður hefur hæfileika til að rúlla inn í öll hin hlutverkin og svo út aftur.
Ef þú ert lærdómsmaður ættir þú að kannast við þig í þessari lýsingu.
Þú trúir ekki öllum sem þér er sagt. Þú þarf nú helst að þukla stólinn til að samþykkja að þetta sé stóll, og svo þarft þú helst að snúa stólnum við til að sjá hvernig hann er búinn til. Það kemur til að þú þarft að vita alla skapaða hluti. Það er eins og nafnið gefur til kynna – lærdómsmenn þurfa að kryfja allt til mergjar.
Þú er hugsuðurinn. Þú ert oftast sjálfum þér nógur, bara ef þú færð að grúska nógu mikið og dunda þér – þá líður þér vel.
Þú vilt vita af hverju hlutirnir eru svona en ekki hinsegin. Þú getur verið að grúska heima hjá sér í stofnunni - verið eitthvað að dunda þér. Fjölskyldan er einhverstaðar í íbúðinni líka. Þú hefur hæfileika til að vita hvað allir eru að gera, eins og þú sért með skyggni. Þú hefur til dæmis hæfileika til að horfa á sjónvarpið, makinn kemur inn og fer að tala við þig, það er kveikt á útvarpinu og þar er einhverjar upplýsingar að hafa, þú hefur hæfileika til að draga allt inn í einu. Það eru bara lærdómsmenn sem geta þetta. Hinir þeir geta þetta ekki.
Þú ert ekki með neitt tiltektaræði eða eitthvað vesen, en þú vilt vita hvar hlutirnir eru því að ef þú þarft á þeim að halda – þá viltu geta náð í þá. Þú vilt helst ekkert vera að henda neinu, því að það getur vel verið að þú þurfir að nota það seinna.
Eins mikið og þú sankar að þér upplýsingum, gætir komið heim í hádeginu og er spurður frétta. Nei, það er ekkert að frétta, þetta er allt eins. Svo kemur þú heim í kvöldmat og þú skiptir um gír, þá getur þú sagt; heyrðu, veistu hvað skeði fyrir hádegi ?
Þú lúrir á upplýsingum, vilt ekkert vera að tala um eitt eða neitt nema þú sért 100% viss um hlutinn. Þú getur verið lengi að koma hlutunum frá þér. Einnig getur þú heyrt eina setningu frá maka þínum sem honum finnst afskaplega einföld, og allt í einu hrekkur frá þér; hvað áttu við ? Það kemur til út að því að þú sérð þrjár hliðar á þessari setningu þar sem makinn sér bara eina hlið. Það eina sem þú ert að spyrja um er hvaða af þessum þremur makinn er að tala um.
Ef þú færir á dansleik þá myndir þú vilja velja sæti þar sem þú sérð yfir allt. Það er af því að þú ert alltaf að draga inn upplýsingar. Við skulum ímynda okkur að það sé stórt og myndarlegt kort á einum veggnum með fullt af upplýsingum. Þá myndi lærdómsmaðurinn þinn ólmur vilja fara þangað og skoða hvað þar stæði, og allir sem stæðu við hlið þér, þeir eru líka lærdómsmenn. Hinir, þeir sjá þetta aldrei – eru bara dinglandi sér einhverstaðar á gólfinu.
Ef við myndum rétta þér einn hlut þá myndir þú vilja skoða allar fjórar hliðarnar á honum áður en þú skilar honum, svo gætir þú sagt; Ásgeir leyfðu mér að sjá undir hann aftur. Það er til að staðfesta það að þú hafir skilið þetta allt satt og rétt, því að eins og við sögðum áðan, þá getur þú skilið þetta á þrjá vegu. Það eina sem þú varst að spyrja okkur um er; Ásgeir hvað af þessum þremur ertu að tala um.
Þú vilt hugsa áður en þú framkvæmir, ef þú ætlar að fara að gera eitthvað þá viltu kryfja það til mergjar áður. Þú getur notað langan tíma í það. Svo þegar þú hefur fundið svarið; hvernig byrjar verkið, hvernig er miðjan á verkin, hvernig endar verkið, það er þá sem þú ríst úr sæti og ferð og framkvæmir. Við segjum líka að lærdómsmaðurinn sér hversdagslega hliðin á þér, hann þarf engar uppákomur, neitt frekar. Hann er sáttur við að lífið gangi sinn vanagang og hann er sjálfum sér nógur.
Þegar þú ert að ala upp börnin þá vilt þú frekar verða vinur þeirra frekar en faðir eða móðri, og þú matar þau á upplýsingum frekar en að vinna verkin sjálf.