Hagleiksmaður
Þú hefur sköpunarhæfileika og þú býrð til nýja sköpun og uppgötvar nýja hluti Þú þarft að vera innan um fólk og vilt hafa líf í hring um þig og vilt helst fá kaup fyrir allt saman.
Ef þú ert hagleiksmaður (Artist) þá kannast þú við þig í þessari lýsingu
Þú átt afskaplega mikið af tilfinningum og stundum veistu ekkert hvað þú átt að gera við þessi ósköp. Þú hefur dásamlegt ímyndunarafl og stundum veist þú ekkert hvað er rétt og hvað er óraunsætt, og þá kemur hinn gírinn og dregur þig niður á jörðina og segir; hættu þessu rugli hér. Hvað er að þér segir þú þá, má maður aldrei leika sér í lífinu ?
Þú finnur fyrir ójafnvægi, ert litaglaður og líflegur og vilt stundum klæða þig líflega. Þú átt erfitt með að sitja kyrr yfir tölvu, leiðist það. Segir; hvers á ég að gjalda, því þarf ég að sitja hér kyrr í sætinu allan liðlangan daginn.
Ef þú ert utan við þig, þá er það hagleiksmaðurinn sem er að leika sér. Við getum ímyndað okkur að þú sért nývaknaður, makinn kemur til þín og spyr þig spurningar og þú segir já. Svo kemur makinn eftir klukkutíma og segir; eigum við að koma að gera þetta sem við vorum að tala um ? Gera hvað ? Nei ég kannast ekkert við þetta, segðu mér frá því . Þegar þú ert í þessu ástandi þá er hugurinn hér uppi á hæðunum hér fyrir ofan og ert að draga allskonar hugmyndir og upplýsingar hér niður. Auðvitað segir hagleiksmaðurinn bara já við makann sinn til að losna við hann sem allra fyrst aftur. Vill enga truflun. Það er þá sem nýjungarnar koma niður.
Þú ert afskaplega hugmyndaríkur, vilt bregða á leik og fíflast pínu lítið. Hitt hlutverkið segir nei, láttu ekki svona, þetta er svo asnalegt – og þá byrja þeir að rífast, hérna inni. Það er hagleiksmaðurinn sem vill fá breytingar, vill breyta í stofunni og þar sem hann er. Það lífgar þig við.
Þú ert oft orkulaus og þreyttur. Það eru bara hagleiksmenn sem finna fyrir þessu þó að þú hafir ekkert verið að gera allan daginn. Þú getur lagt þig og sofið í 8 -9 tíma og samt vaknað þreyttur. Það er vegna þess að þú ert á flakki á nóttunni og það er mikið að gera hjá þér á stundum. Þú getur lært að stýra því, bara með því að biðja um hlutina þá fara þeir að koma til þín.
Besta ráðið fyrir makann til að fá þig framúr er að segja, heyrðu það er búið að rista brauð handa þér eða það eru komnir gestir, þá kemur þú undir eins. Ef makinn kemur og segir; komdu framúr og engar refjar, þá gætir þú ætt það til að svara; ég er alveg að koma, ætla bara aðeins að lúra. Þá gæti makinn sagt; það mætti halda að þér þætti gaman að sofa. Þá svara þú; já, það er nefnilega raunin, en ennþá meira gaman væri að vita hvað ég væri að vita þegar ég er sofandi.
Þú átt meðal sem kemur þér í jafnvægi, það er faðmlag. Þú getur faðmað makann þinn í tíma og ótíma og það kemur þér í jafnvægi.
Hagleiksmaður og sögumaður eru bræður. Hagleiksmaðurinn er grófari, hann mun t.d. segja; er ekki hægt að fá að míga hér, meðan sögumaðurinn myndi spyrja um snyrtinguna.