Þjónn
Þjónn, það er eins og nafnið gefur til með, þér finnst gott að láta gott af þér leiða til fólks. Þú ert með stjórnunarhæfileika en vilt stýra á bak við tjöldin frekar en opinberlega. Þjónninn hann veit hvað öllum er fyrir bestu. Það er bara eðli hans.
Ef þú ert með þjóninn ættir þú að kannast við þig í lýsingunni hér að neðan.
Þjónninn er nákvæmur og vill gera alla hluti vel, við setjum þig í þjón, dæmisaga, og höfum þig í þjóni í tvo daga, sem gerist aldrei því að þú skiptir alltaf um gír. Nú ef að þjónninn tekur sig til og fer að taka til heima hjá sér, þá er allt skrúbbað út að dyrum.
Við komum að heimsækja þig og förum inn í stofuna og förum að færa svolítið til stytturnar þínar og þá liggur við að þú komir gangangi á eftir okkur og lagir þetta allt. Það er bara spurning hvort að þú bíður eftir því að við förum út eða ekki. Ef við myndum kíkja inn í fataskápana þína þá liggur við að við gætum notað reglustiku á allt saman, það er svo vel raðað.
Þjónninn er mjög samviskusamur og hugar vel að fjölskyldu sinni og heldur þessu öllu saman. Þjónninn vill ekki koma of seint í vinnu, kemur vanalega á réttum tíma og það er óskaplega gott að hafa þá í vinnu. Þeir eru samviskusamir og hafa stundum þessa fullkomnunaráráttu, eru svo vandvirkir.
Þegar þjónninn er að klæða sig þá vill hann hafa allt í beinni röð, ekki má vanta neina tölu, nælan má ekki vera skökk. Hann er góður í þessu.
Við skulum ímynda okkur að þú sért í einhverju félagi og þetta félag á von á gestum. Þá væri best að biðja þig um að undirbúa allt áður en fólkið kemur. Því að þjónninn myndi sjá vel um þetta og það vantar sko akkúrat ekkert uppá þegar fólkið kemur.
Við skulum ímynda okkur að þú ert beðin um að fara upp í ræðustól og halda hérna góða ræðu. Þá myndi koma innra stríð til þín. Þjónninn myndi segja, nein frekar myndi ég detta niður dauður en að standa hér fyrir framan alla og láta bera svona svakalega mikið á mér.
Við skulum ímynda okkur að dóttirin er orðið tvítugt og ætlar að kaupa sér íbúð, það koma tvær íbúðir til greina. Önnur íbúðin er náttúrulega betri, þjónninn er svo fljótur að sjá hvað hentar betur börnunum sínum. Þá myndi þjónninn endilega vera með puttana í þessu og þú myndir fara og segja henni að þessi íbúð hentaði miklu betur, það er svo auðséð. Ég er bara með þína velferð í huga og ekkert annað. Við skulum ímynda okkur að dóttirin segi; já þetta er rétt hjá þér eins og vanalega. Við skulum ímynda okkur að þú eigur aura alveg ein í þínum vasa. Þá gætir þú átt það til að draga þá upp og segja gjörðu svo vel, ég skal hjálpa þér. Farðu þá og festu kaupin. Þú þarft ekkert að borga mér þetta til baka aftur, og það er óþarfi að vera að segja pabba þínum frá þessu. Þannig vinna þjónar á bak við tjöldin og láta gott af sér leiða án þess að vera að básúna því út um allan bæ.
Þjónninn er rósrauður, rósrauð og falleg áran í hring um þig. Það er voða margt fólk sem kemur til þjónsins og leitar ráða hjá þeim um framtíðina.
Þegar þú ert búin að gefa gott ráð, þá skaltu aldrei ergja þig yfir því þó að fólk fari ekki eftir því sem að þú segir þeim eða leiðbeinir þeim með. Það er þeirra að fara eftir því og þú hefur ekkert með það að gera. Þegar þú ert búin að gefa gott ráð þá ertu búin með þitt verkefni. Svo er það þeirra verkefni að gera það eða ekki. Það fer eftir þroska hvers og eins hvort að hann er tilbúinn til þess eða ekki. Svo getur fólk komið til þín aftur eftir ár og spurt sömu spurningar og þá loksins farið eftir því sem þú segir.