Sögumaður
Sögumaður er næsti bær við hagleiksmanninn en hann er stöðugri á fótunum. Hann er ekki eins glannalegur í litavali, er smekkmaður og vill klæða sig í stíl. Láta fötin passa. Sögumaður er afskaplega skemmtilegt hlutverk.
Ef þú ert sögumaður muntu kannast við þig í þessari lýsingu.
Sögumaður er eina hlutverkið sem heldur barninu í sér og minnir okkur hin á að við vorum einu sinni börn, sem er alveg bráðnauðsynleg fyrir okkur hin. Sögumaður hefur hæfileika til að tala við alla aldurshópa, hvort svo sem það er þriggja ára barn eða áttræð kona. Þú getur sett þig inn eins og þú sért sjálf þriggja ára og talað við þau á þeim nótum, og allt þar á milli. Þú mátt til með að halda þessum sögumanni í þér og leyfa honum að njóta sýn, því að hann getur brugðið á leik og skemmt sér svolítið.
Það eru oft börn Sögumanna sem segja, hvað er að þér eiginlega. Þetta er eins og Ómar Ragnarsson, hann er sögumaður. Þegar hann segir frá þá lifnar allt við. Sögumaðurinn er glettinn og stríðinn. Það kemur glampi í augun þá þér, líflegur glampi.
Sögumaður er sáttasemjari og honum leiðist allt rifrildi. Er mjög mikið diplómat, kemur vel fyrir og er kurteis.
Sögumaður er með rödd innra með sér sem getur talað við þig í tíma og ótíma ef þú gefur honum leyfi til þess. Við skulum ímynda okkur að þið hjónin hafi verið að rífast í gær og hann er farinn í vinnuna og þú ert ein með sjálfri þér. Þá getur röddin komið hér inn og getur rifjað upp allt rifrildið lið fyrir lið, ég sagði, hann sagði o.s.frv. Þegar þetta skeður þá líður þér hálf illa. Þú skalt bara segja við þessa rödd; ef þú hefur ekkert skemmtilegar að segja mér þá skaltu bara þegja. Þá snarbreytist þetta allt og sögumaðurinn segir; já þetta er rétt hjá þér, við skulum bara leika okkur í dag.
Sögumaður, það sést langar leiðir þegar hann er á ferðinni. Hann lífgar upp fólkið í hring um sig. Við skulum ímynda okkur að þú sért komin með gesti. Þú varst ekki heima og maðurinn þinn tók á móti þeim. Þú kemur gangangi inn í stofu og þá getur sögumaður átt það til að taka eitt eða tvö dansspor og segja; halló ég er komin, hvað segið þið hin. Þetta langar honum að gera en svo gæti þjónninn komið og sagt; við skulum hætta þessu, ekkert vera að þessu hér og nú.
Hagleiksmaður og sögumaður eru bræður. Hagleiksmaðurinn er grófari, hann mun t.d. segja; er ekki hægt að fá að míga hér, meðan sögumaðurinn myndi spyrja um snyrtinguna. Sögumaður er pjattaður.