Prestur
Prestur vill fá kaup fyrir að tala, hann er með sterka rödd og þegar röddin er rétt stillt inn þá opna allir eyrun og hlusta. Þrjóskan einkennir prestinn. Þrjóskan er neikvæði póllinn á ákveðninni.
Ef þú ert prestur þá kannast þú við þig í þessari lýsingu.
Þegar þrjóskan kemur í þig þá leggst hún inn í allan líkamann þinn og þú finnur fyrir henni í öllum líkamanum. Það er bein tenging á milli þrjósku og mjóbaks. Mikil þrjóska, mikill verkur, lítil þrjóska, lítill verkur, engin þrjóska, engin verkur. Svo að ef þú finnur að þú ert með bakverk þá finnur þú að þrjóskan er komin í þig. Þá sestu niður og andar svolítið og svissar yfir í ákveðni. Því að þá fer bakverkurinn – það er alveg víst. Líka að þegar þú ert að keyra líkama þinn á þrjósku er það eins og að keyra bíl olíulausan – þú bara höktir. Svo að nú þarftu aldrei að vera með bakverk meir – getur bara læknað sjálfur. Það er það besta svo að þú þurfir ekki að fara í brjósklosið.
Prestar eru frægir fyrir áhyggjur. Þeir geta haft áhyggjur af lífinu í allri sinni mynd. Þetta er út af því að þeir eru með köllun til að hjálpa fólki. Eitt skaltu vita að níutíu prósent af öllum þínum áhyggjum og áhyggjum manna – bara yfir höfuð – eru óraunhæfar. Svo að næst þegar þú færð áhyggjur skaltu spyrja sjálfan þig; ætli þetta sé ekki eitt af níutíu prósentunum. Og þú ferð í þjálfun með sjálfan þig með að draga úr áhyggjum þá eykst orkan þín, því að áhyggjur draga úr þér lífsorkuna.
Prestur er með steka rödd og ef þú stillir röddina rétt inn þá opna allir eyrun og fara að hlusta á þig – það gerist af sjálfu sér. Þú getur líka orðið ákafur, við skulum ímynda okkur að vinir þínir séu að tala saman og þú kemur að þeim, og presturinn veit náttúrulega allt um málið þá á hann til að taka af öllum orðið. Þá þýðir ekki fyrir einn eða neinn að tala, það ræður enginn við hann hvort sem er. Svo hugsa þeir með sér; jæja hann sagði þetta, það hlýtur að vera eitthvað til í því.
Prestur getur látið makan hrökkva við bara með röddinni. Við skulum ímynda okkur að þú sért að fara út úr húsinu og finnur ekki sokkana þína eða veskið þitt. Þú segir einfaldlega; hvar er veskið mitt. Makinn svoleiðis snarhrekkur í kút, hálf dáleiðist, nær í veskið og kemur og segir hér er veskið, gerðu svo vel.
Köllun þín er til að hjálpa fólki. Við skulum ímynda okkur að vinur þinn hringir í þig og segir; veistu, ég get ekki gert það sem ég er að gera. Getur þú komið og hjálpað mér. Þú væri slappur prestur ef þú ferð ekki að hjálpa honum um leið. Prestur er rokinn út til að bjarga. En makinn má alltaf vita að þú kemur aftur – svo að það er í lagi.
Tónlist eykur orku þína. Ef þú setur bara fallega tónlist á þegar þú ert með áhyggjur þá rjúka þær bar út í verður og vind. Ef þú færir í kór og væri uppgefinn þegar þú færir að syngja, þegar þú værir búinn að syngja þá áttu heiminn – þú ert fullur af orku. Allt sem heitir söngur og tónlist eykur orku prestsins.
Þú er með næmt innsæi. Þú þarft að æfa þig í að nota þetta innsæi. Þá nærðu að rata rétta leið.
Þú ert með sendingarorku. Ef þú ert með áhyggjur þá sendir þú frá þér áhyggjur. Ef þú ert með áhyggjur af einhverjum og telur viðkomandi vera veikan þá sendir þú viðkomandi bara í rúmið. Að sama skapi getur þú hjálpað viðkomandi með því að einbeita þér að jákvæðari hugsunum sem þú síðan sendir frá þér meðvitað eða ómeðvitað.