Konungur
Þú ert jarðbundinn, er ekkert til í að eltast við fólk og láta það hendar sér til og frá. Vill miklu frekar ráðskast með fólkið.
Ef þú ert konungur þá kannastu við þig í lýsingunni hér að neðan.
Konungur er fæddur til að stjórna. Ef þú ert í góðu standi þá leikur það í hondunum á þér. Það er alveg sama þó að þú fengir stórfyrirtæki til að stjórna það myndi vera í góðu lagi ef að þú ert í góðu standi. Ef að þér líður illa þá viljum við ekki vera nálægt þér því að þá kúgaru fólk. Þetta er neikvæði póllinn á konunginum. Það eru bara tvö prósent af mannkyninu með konunginn, en sex prósent á íslandi – auðvitað.
Konungur er eins og nafnið gefur til með er ekkert að hlaupa í uppvask. Vill að aðrir geri það fyrir sig. Ef að konungur fer í veislu og setur strax fast í konung þá kemur enginn og talar við þig. En um leið og þú losar um þig þá liggur við að fólk sláist um að aðstoða þig; má færa þér eitthvað, vantar þig eitthvað.
Konungur getur farið í strætó. Ef þú setur vel í konung þá vill enginn sitja við hliðina á þér en um leið og þú losar um þá er slegist um sætið.