Stríðsmaður

Rétt er rétt og rangt er rangt. Ég er búinn að elda matinn komið að borða núna annars fáið þið ekkert að borða. Við skulum láta þetta heimili ganga upp hér.

Ef þú ert stríðsmaður þá kannastu við þig í þessari lýsingu.

Þú ert jarðbundinn í báða skó. Þú ert vinur vina sinna fram í rauðan dauðan og bregst þeim ekki. Ef að Palli kemur hérna inn og fer að tala illa um fólkið þitt, þá má hann Palli nú bara eiga sig og það þarf nú bara ekkert að tala við hann Palla meir. Og okkur er nærri því sama þó að hann detti niður dauður – okkur kemur það bara ekki við.

Þú vilt láta heimilið ganga upp og í þér er óskaplega mikil orka. Ef þú þarft að laga til þá er það nærri því búið áður en það byrjar.

Stríðsmaður er heiðarlegur og með mikla og háa réttlætiskennd og finnst óskaplega erfitt að skipta um skoðun.

Það er mjög gott að hafa stríðsmann í vinnu. Það er áræðanlegt og mætir á réttum tíma – og jafnvel sér til þess að aðrir geri það.